Þið selduð okkur fyrir stuðning og flýtimeðferð, það er ástæðan fyrir þessari stórundarlegu afstöðu íslensku ríkistjórnarinnar í icesave ruglinu, ég segi nei við lögum nr. 1 2010
ESB og Icesave aðskilin mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hárrétt hjá þér. Þeir hafa svo notast við orðið alþjóðasamfélag í hræðsluáróðri sínum í stað orðsins evrópusamband til að fela þessa staðreynd, enda er meirihluti þjóðarinnar andvígur þessari inngöngu.
Þessi umsókn er í því ljósi mesta stjórnmálaklúður í sögu þjóðarinnar og jafnvel galnara en ótímabrær og stjörnuvitlaus umsókn um sæti í öryggisráðinu á meðan hrunið dundi yfir.
Búsáhaldabyltingin hrópaði vanhæf ríkistjórn og það var einmitt það sem við fengum.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.1.2010 kl. 16:15
Sammála Stórt NEI.
Er það trúverðugur Ráðherra sem fer eingöngu út með þessa spurningu?
Hvenær ætlar þessi auma Ríkisstjórn að stimpla sig inn í vinnuna og fá hrein svör við því hjá ESB hvar Ísland stendur gagnvart EVRÓPULÖGGJÖFINNI um innistæðutryggingakerfið. Samkvæmt Evu Joly og fleirum á hún ekki við um kerfishrun eins og varð hér.
Þetta er spurning sem Geir og Solla hefðu átt að fá endanlegt svar við á fyrsta hrundegi. Og að sjálfsögðu þessi Ríkisstjórn þegar hún tók við.
Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.